Þessir skilmálar eru bindandi samningur milli notanda („Notandi”, „þú”) og Rannsóknasetur verslunarinnar ses., kt. 500114-0100, með lögheimili Bifröst skóla, 311 Borgarnesi (”RSV/Veltan” ,“þjónustan,”) og taka á notkun þinni á þjónustum RSV, meðal annars vefsíðum, hugbúnaði og öðrum vörum og þjónustum (sameiginlega kallað "þjónustan”).Með því að nota þjónustu okkar samþykkir þú að vera bundin af þessum viðskiptaskilmálum og persónuverndarstefnu RSV. RSV heldur utan um allt sem viðkemur umsýslu notenda sinna á einum og sama stað. Notendum Veltunnar gefst kostur á þremur leiðum til að nýta sér þjónustu fyrirtækisins.
Þjónustuleiðirnar eru eftirfarandi:
Einstaklingsáskrift – Þjónustuleið fyrir einstaklinga, ekki fyrirtæki. Innifalið í þjónustuleiðinni er:
- Kortaveltan – Þjónustuleið sem veitir notendum aðgang að kortaveltusvæði á lokuðum notendavef sínum, Veltan. Á kortaveltusvæði er hægt að skoða og sækja gögn RSV um kortaveltu, bæði Íslendinga og erlendra ferðamanna. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum.
Grunnáskrift – Þjónustuleið sem veitir fyrirtækjum aðgang að Veltunni. Þjónustuleiðin er einnig í boði fyrir einstaklinga. Hún veitir notendum aðgang að öllum notendasvæðum á Veltunni. Veltan innihaldur:
- Mælaborð verslunarinnar þar sem aðgengilegar eru allar helstu tölfræðiupplýsingar um verslun á einum stað.
- Kortaveltusvæði með gögnum RSV um kortaveltu, bæði Íslendinga og erlendra ferðamanna. Kortaveltan er sundurliðuð eftir þjóðerni og tegundum verslana og þjónustu auk þess sem netverslun er sundurgreind frá verslun í búðum.
- Vísitölusvæði með hinum ýmsu vísitölum verslunar og þjónustu. Til að mynda vísitölu smásöluveltu, vísitölu hrávöruverðs og Netverslunarvísi RSV sem sýnir umfang og þróun erlendrar netverslunar landsmanna.
- Útgáfusvæði þar sem útgáfur og rannsóknir RSV eru aðgengilegar.
- Aðgangur fyrir þrjá notendur innan fyrirtækisins
Fyrirtækjaáskrift – Þjónustuleið sem veitir fyrirtækjum fimm notendaleiðir fyrir starfsmenn sína. Starfsmannaaðgangar innihalda aðgang að öllu efni á Veltunni auk þess sem beintengingar við eigin kerfi fylgja fyrirtækjaáskrift. Fyrirtæki með fyrirtækjaáskrift geta fengið skriflegt samþykki RSV til að vinna með gögnin á sinn venjubundna hátt svo lengi sem það felur ekki í sér beina opinbera birtingu á efninu.
Hver auka notendaaðgangur sem er ekki innifalinn kostar 3.590 kr. án vsk.
Fjölmiðlum býðst gjaldfrjáls áskrift gegn þeim skilmálum að vitna í Rannsóknarsetur verslunarinnar í þeim fréttum sem unnar eru úr efni af Veltunni og að þær fréttir verða að vera opnar fyrir alla, ekki lokaðar fyrir áskrifendur viðkomandi miðils.
Til að notendur Veltunnar geti nýtt sér þjónustuna eru þeir beðnir um að gefa upp nafn, netfang, kennitölu greiðanda sem er einstaklingur og/eða lögaðili auk greiðsluupplýsinga (banka- eða kortaupplýsingar). Þessar upplýsingar eru allar liður í því að RSV geti þjónustað notendur sína.
RSV uppfyllir kröfur reglugerðar nr. 505/2013 um rafræna reikninga og rafrænt bókhald o.fl. hvað varðar reikningakerfi og rafræna reikninga.
1. Skilgreiningar
Notandi: Aðili sem kaupir áskrift, skráir sig inn á Veltuna með aðgangsupplýsingum og getur í framhaldi nýtt þá þjónustu sem í boði er á Veltunni.
Þjónustan: Upplýsingar og virkni á vef Veltunnar, sem gera notendum m.a. kleift að skoða og vista upplýsingar og gögn og nálgast grafískar skýrslur um þróun og breytingum sem varða verslun og neysluhegðun, túlkun á hagtölum og hagnýtar rannsóknir á sviði verslunar og þjónustu.
2. Samþykki notkunarskilmála
Með því að nota þjónustuna, samþykkir þú að hlíta þessum skilmálum. Orðin „þú“ og „notandi“ í öllum beygingarmyndum sem fram koma í þessum skilmálum vísa til notanda. Þeir aðilar sem hyggjast nýta sér þjónustu RSV verða að lesa þessa skilmála og samþykkja. Til notkunar telst m.a. skoðun, upplýsingaöflun og/eða nýting þeirrar þjónustu sem í boði er á vefsvæði RSV eins og vefurinn kemur notendum fyrir sjónir á hverjum tíma. Öll notkun vefsins takmarkast við þær aðgerðir sem eðlilegar og löglegar geta talist, ásamt þeim upplýsingum og þjónustu sem boðið er upp á á hverjum tíma. Áður en þú lest áfram ættir þú að prenta út og vista eintak af skilmálum þessum.
3. Persónuvernd
Við skráningu er gerð krafa um að ákveðnar persónuupplýsingar notenda séu gefnar upp, s.s. nafn, kennitala, símanúmer og netfang. Auk þessa gefa notendur greiðsluupplýsingar vegna þjónustukaupa, banka- eða kortaupplýsingar.
RSV starfar að öllu leyti í samræmi við íslensk lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Stefna RSV er að vinna með eins takmarkað magn af persónugreinanlegum upplýsingum og mögulegt er til að veita þjónustuna. RSV leggur mikla áherslu á vernd persónuupplýsinga og mun ekki undir nokkrum kringumstæðum afhenda, selja eða leigja persónuupplýsingar notenda til þriðja aðila. Skoða nánar persónuverndarstefnu RSV.
4. Aðgangur að þjónustunni og aðgangsupplýsingar notenda
Við upphaf áskriftakaupa fá notendur sent notendanafn og lykilorð að Veltunni. Notendur eru ábyrgir fyrir því að tryggja leynd lykilorða sinna sem gerir þeim mögulegt, ásamt notandanafni þeirra, að innskrá sig á notendavef RSV. Með því að láta RSV í té netfang sitt samþykkja notendur að RSV megi, þegar nauðsyn krefur, senda notendum tilkynningar á netfang þeirra í tengslum við aðgang þeirra að þjónustunni.
Notandanafn, lykilorð og aðrar samskiptaupplýsingar sem notendur kunna að láta RSV í té teljast til „aðgangsupplýsinga“ notenda. Réttur notenda til að fá aðgang að og nota þjónustuna er bundinn við þá og þeim er ekki heimilt að flytja þann rétt til annars einstaklings eða lögaðila. Notendum er einungis heimilt að fá aðgang að og nota þjónustuna í löglegum tilgangi.
Ef notandi verður á einhvern hátt var við að óviðkomandi aðili hafi komist yfir aðgangsupplýsingar sínar, samþykkja þeir að gera RSV strax viðvart með því að senda tölvupóst á [email protected].
Aðgangur notenda að RSV gæti rofnað af ýmsum ástæðum, t.d vélbúnaðarbilun, tæknilegum bilunum, hugbúnaðarvillum eða uppfærslu á kerfi. RSV ber ekki ábyrgð á tjóni sem slíkt kann að valda, sbr. 12. gr.
5. Lok samnings
RSV geymir persónuupplýsingar í 30 daga eftir lokun aðgangs sbr. 3. gr. í persónuverndarstefnu RSV. Við lok samnings getur notandi óskað eftir að fá gögn sín á tölvutæku formi gegn greiðslu samkvæmt verðskrá RSV hverju sinni.
Uppsagnarfrestur áskriftarsamnings er 3 mánuðir, notandi getur sagt upp áskriftinni með því að tilkynna uppsögn á áskrift á vef RSV eða með því að senda tölvupóst á [email protected]. Notandi borgar fyrir þjónustuna þar til uppsagnarfresti lýkur, eða í 3 mánuði eftir uppsögn.
6. Þóknun RSV
Þóknun RSV er í samræmi við gildandi verðskrá hverju sinni og ábyrgist RSV að rétt gjaldskrá er alltaf aðgengileg á vef Veltunnar. Enginn ógegnsæ gjöld eru falin í áskrift að RSV né heldur í útseldri vinnu starfsmanna RSV við sérverkefni.
Fyrsta hvers mánaðar sendir RSV út reikninga fyrir notkun tímabilsins (mánuðarins/ársins eftir því hvort notandinn valdi í áskrift), sem dæmi eru reikningar sendir út 1. júní fyrir notkun í júní mánuði. Krafa RSV fellur á eindaga sjö dögum eftir útgáfu hennar. Við verklok sérverkefna sendir RSV út reikninga skv. gjaldskrá, Krafa RSV fellur á eindaga sjö dögum eftir útgáfu hennar.
Endurgreiðslur eru ekki veittar nema í tilfellum þar sem sannanlegt er að gögnin eða þjónustan hafi ekki uppfyllt þá skilmála sem samið var um. Allar beiðnir um endurgreiðslu skulu berast innan 14 daga frá kaupdegi.
7. Tilkynningar til notenda með tölvupósti
RSV sendir notendum nauðsynlegar tilkynningar með rafrænum hætti. Tilkynningarnar tengjast þá skráningum og aðgangi notenda, sem dæmi um þetta er þegar aðgangsupplýsingum er breytt eða aðrar valkvæðar tilkynningar í tengslum við notkun á þjónustunni. Af og til kann RSV að bæta við nýjum tegundum tilkynninga eða að fjarlægja tilteknar tegundir tilkynninga. Rafrænar tilkynningar frá RSV verða sendar á netfangið sem notandi gaf upp í tengslum við aðgang notanda á RSV.
Þar sem tilkynningar eru ekki dulkóðaðar munu þær aldrei innihalda lykilorð notanda. Í þeim tilfellum sem notandi gleymir lykilorði sínu getur hann fengið sendan hlekk á uppgefið netfang á slóð sem gerir viðkomandi kleift að búa til nýtt lykilorð.
Tilkynningar geta innihaldið netfang notanda (þegar sendur er tölvupóstur). Allir sem hafa aðgang að tölvupósti notanda munu geta séð innihald tilkynninganna.
Notandi er meðvitaður um að öllum tilkynningum sem sendar eru með notkun þjónustunnar gæti seinkað eða þær ekki borist notanda af ýmsum ástæðum. RSV reynir eftir fremsta megni að tryggja að tilkynningar berist fljótt og örugglega en ábyrgist á engan hátt að tilkynningar berist eða að tilkynningar innihaldi ávallt nýjustu og/eða réttar upplýsingar.
8. Hugverkaréttindi
Allt innihald vefsvæðis RSV, þar með talið útlitshönnun (t.d. texti, grafík, myndir, vörumerki), ljósmyndir, hugbúnaður, ritstýrt efni, tilkynningar og annað efni er varið samkvæmt höfundarréttar- og vörumerkjalögum á Íslandi og annars staðar. Innihald vefsvæðis RSV er eign RSV eða notað samkvæmt leyfi frá hugbúnaðar-, gagna- eða öðrum efnisveitum sem RSV á í viðskiptasambandi við. RSV veitir notendum leyfi til að skoða og nota vefsvæði RSV samkvæmt þessum skilmálum. Notendur mega eingöngu sækja eða prenta afrit af upplýsingum og efni á vefsvæði og notendavef RSV til sinna eigin persónulegu nota sem ekki eru í fjárhagslegum tilgangi í samræmi við II. kafla höfundalaga. Öll dreifing, endurútgáfa eða rafræn afritun af innihaldi vefsvæðis RSV, hvort heldur sem er að hluta til eða heild, eða í einhverjum öðrum tilgangi er þér með öllu óheimil nema með skriflegu samþykki RSV. Fyrirtæki með fyrirtækjaáskrift geta fengið skriflegt samþykki RSV til að vinna með gögnin á sinn venjubundna hátt svo lengi sem það felur ekki í sér beina opinbera birtingu á efninu.
Um brot gegn þessari grein fer skv. ákvæðum 10. gr.
9. Aðgangstakmarkanir
Öll dreifing, endurútgáfa eða rafræn afritun af efni vefsvæðis RSV, hvort sem er í heild eða hluta, er óheimil án skriflegs samþykkis RSV. Fyrirtæki með fyrirtækjaáskrift geta þó fengið skriflegt leyfi frá RSV til að vinna með gögnin samkvæmt venjubundnum vinnubrögðum, svo lengi sem það felur ekki í sér beina birtingu eða opinbera dreifingu efnisins.
Þegar notandi samþykkir skilmála þessa fellst hann á að hann muni ekki nota nokkurs konar sjálfvirkan hugbúnað, forrit eða aðrar aðferðir til að verða sér út um aðgang að, afrita eða fylgjast með einhverjum hluta af vefsvæði RSV nema með skriflegu leyfi RSV og/eða ef slík þjónusta hafi verið keypt af RSV.
Notandi samþykkir einnig að hann muni ekki nota forrit, hugbúnað eða annars konar aðferðir til að heimsækja, nota eða leita að gögnum á vefsvæði RSV nema með almennum vöfrum (t.d. Firefox eða Google Chrome) og almennum leitarvélum (t.d. Google eða Bing).
Notandi samþykkir að hann muni ekki senda skrár eða gögn á vefsvæði RSV sem geti flokkast sem tölvuvírus, tölvuormur eða trójuhestur eða skrár sem innihalda einhvers konar skaðlega eiginleika og/eða geta á einhvern hátt truflað eðlilega virkni og/eða þjónustu RSV.
Notandi samþykkir að hann muni ekki reyna á nokkurn hátt að sækja, birta eða greina undirliggjandi forritskóða út frá þeim hugbúnaði sem er notaður af RSV. Ef notandi fær aðgang að undirliggjandi forritunarkóða á vegum RSV, s.s. vegna bilunar, ber honum að tilkynna slíkt til forstöðumanns ([email protected])
Um brot gegn þessari grein fer skv. ákvæðum 10. gr.
10. Takmörkun ábyrgðar
RSV ber ekki ábyrgð á óþægindum eða tjóni sem orsakast beint eða óbeint vegna bilunar í tölvubúnaði og/eða hugbúnaði fyrirtækisins eða notanda eða af öðrum orsökum, sem kunna að valda því að upplýsingar eru ekki réttar eða að notandi nái ekki að tengjast þjónustunni. RSV ber ekki ábyrgð á óþægindum eða tjóni sem kann að orsakast beint eða óbeint vegna galla eða bilunar í endabúnaði, tengingu við veraldarvefinn, þeim hugbúnaði sem nauðsynlegur er til tengingar við vefsvæði RSV, vafra eða stýrikerfi notanda eða tölvukerfi RSV, eða af öðrum þeim orsökum sem kunna að valda því að aðgerðir á vefsvæði RSV geta ekki farið fram eða verða með öðrum hætti en til var ætlast s.s. vegna tæknibilana, villna í gögnum eða truflana í rekstri tölvukerfa. RSV ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af vanþekkingu, misskilningi eða misnotkun notanda eða annars aðila með eða án umboðs notanda. RSV ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til rangra aðgerða notanda eða annars aðila. RSV ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til utanaðkomandi atvika t.d. bilana, rangra utanaðkomandi upplýsinga o.þ.h. Enn fremur ef rekja má tjónið til atvika sem stafa af náttúruhamförum, styrjöldum, verkföllum eða vegna atriða sem talin verða falla undir óviðráðanleg tilvik (e. force majeure).
11. Lokun aðgangs, gildistími skilmála og breytingar á skilmálum
RSV áskilur sér rétt til þess að grípa til hvaða aðgerða sem teljast nauðsynlegar til að bregðast við brotum gegn skilmálum þessum, þ.m.t. tafarlausrar lokunar á aðgangi notanda.
RSV áskilur sér rétt til þess að loka einhliða aðgangi notanda (eftir atvikum að eyða aðgangi) að vefsvæði RSV hvenær sem er, og án fyrirvara. Þegar RSV metur að grípa þurfi til slíkra aðgerða verður notanda gert viðvart um þá ákvörðun og send tilkynning þess efnis á netfangið sem notandi gaf upp við skráningu. Sem dæmi um slík tilfelli er t.d. ef notandi verður uppvís að misnotkun á kerfi RSV, ef notandi hefur brotið í bága við eitthvert ákvæði þessara skilmála, eða ef notandi hefur hegðað sér á þann hátt að augljóst er að notandi ætli ekki eða geti ekki uppfyllt ákvæði þessa skilmála. Ef grunur vaknar að um lögbrot sé að ræða þá áskilur RSV sér rétti til tilkynna slíkt til yfirvalda.
RSV sendir út reikninga til viðskiptavina sinna 1. hvers mánaðar vegna notkunar fyrir mánuðinn, sbr. 6. gr. skilmála þessa. Krafan fellur á eindaga sjö dögum eftir útgáfu hennar og sé krafan ekki greidd fyrir eindaga er aðgangi notanda lokað þar til greiðsla berst.
12. Gildistími skilmála og breytingar á skilmálum
RSV áskilur sér rétt til að breyta þessum viðskiptaskilmálum og bæta við þá hvenær sem er og taka slíkar breytingar gildi án fyrirvara. Ef um er að ræða breytingar sem eru ekki til hagsbóta fyrir notendur þjónustunnar skal tilkynna notendum um þær með tryggum hætti með minnst sjö daga fyrirvara fyrir gildistöku breytinganna.
13. Ágreiningur milli aðila og lögsaga
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna. Notendur samþykkja að jafnvel þó svo að RSV nýti sér ekki einhvern þau réttindi sín sem hljótast af þessum skilmálum að þá skuli ekki túlka það sem afsal þess réttar. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.